Hvernig stofnar maður fatalínu

EyMí er fatalína sem var búin til af tveimur nemendum í 10. bekk sem hluti af lokaverkefni okkar í grunnskóla. Hugmyndin kviknaði út frá sameiginlegum áhuga okkar á textíl og saum og lönguninni til að gera eitthvað einstakt sem endurspeglar okkar eigin persónuleika.
Við ákváðum að þróa fatalínuna alveg frá grunni. Við völdum nafnið EyMí sem táknar bæði samstarf okkar og tengingu við okkar eigin stíl. Markmiðið var ekki bara að hanna föt, heldur einnig að kafa dýpra í ferlið á bak við fataframleiðslu, sérstaklega tengt hraðtísku, áhrifum hennar og hvernig hægt er að skapa meðvitaðri og meira persónulega nálgun í tískuheiminum.
Við nýttum tímann til að prófa okkur áfram með hugmyndavinnu, hönnun, efnisval og kynningu og lærðum mikið á stuttum tíma. Þetta verkefni var tækifæri til að þróa skapandi hæfileika og vitund en líka til að hafa gaman, prófa nýjar hugmyndir og gera eitthvað sem stendur upp úr sem lokaverkefni okkar í grunnskóla.

Kynningin á pdf formi